Hér má finna ýmist efni sem Eiríkur Ernir Þorsteinsson hefur notað við kennslu.
Þegar villur finnast í efninu má tilkynna það í gegnum issue-kerfið á þessari síðu.
Þriðji aðili má nota efnið, sjá LEYFI.md.
Kennsluefnið er að mestu leyti sett fram á LaTeX sniði. Sniðið er hrátextasnið sem þarfnast þýðingar. Útkoman er safn .pdf skráa.
Gefnar eru make skrár til að aðstoða við þýðingu.
Make skrárnar gera ráð fyrir að hjálparforritið latexmk
sé uppsett, auk eðlilegra LaTeX-pakka. Á Ubuntu má setja upp latexmk
með skipuninni sudo apt-get install latexmk
.
Að öllum forkröfum uppfylltum má þýða allt kennsluefnið með því að gefa skipunina
make
í þessari rótarmöppu. Einnig má keyra skipunina í undirmöppu einhvers ákveðins námskeiðs til að þýða eingöngu kennsluefni þess námskeiðs.